top of page
Hættu að Væla Komdu að Kæla - Wim Hof Method helgarnámskeið Höfn
Hættu að Væla Komdu að Kæla - Wim Hof Method helgarnámskeið Höfn

Sat, Nov 16

|

Íþróttahúsið Mánagarður og Mánavöllur

Hættu að Væla Komdu að Kæla - Wim Hof Method helgarnámskeið Höfn

Ekki til sölu | Not for sale
Námskeið | Workshops

Nov 16, 2024, 1:00 PM – Nov 17, 2024, 2:00 PM

Íþróttahúsið Mánagarður og Mánavöllur, Höfn, Iceland

Námskeið | Workshop

HÆTTU AÐ VÆLA, KOMDU AÐ KÆLA. Wim Hof Method helgarnámskeið Höfn

Uppgötvaðu eigin hæfileika til að geta verið í lagi, sama hvað gengur á. 

Öndun| Kuldaþjálfun | Kraftur hugans


Við búum við stanslaust áreiti. Allt frá vægu áreiti til langvinnar streitu. Sem við höldum að sé ósjálfrátt og alfarið úr okkar höndum. Þessi streita getur valdið bólgum í líkamanum og komið huga okkar og heilsu úr jafnvægi.

Hvað ef, til væri einföld leið til að enduruppgötva eigin hæfileika til að ná aftur stjórn á ósjálfráðum viðbrögðum við streitu og áreiti alveg sama hvað gengur á? Læra að vera í auga fellibylsins.

Uppgötva kraftinn sem býr innra með okkur til þess að finna jafnvægi líkama, huga og tilfinninga

  1. Máttur hugans: Að gefa sér tíma til að fylgjast með ómeðvitaðri hegðun, því sem við trúum og öðru því sem kemur í veg fyrir innri sátt. Uppfærum úrelt kerfi.

  2. Öndun: Að hámarka aðferð líkamans á inntöku súrefnis og endurstilla taugakerfið. Sem leiðir af sér meira úthald, orku og styrkir ónæmiskerfið. Sem kemur af stað keðjuverkun jákvæðra breytinga á líkama og huga.

  3. Kuldameðferð: Við lærum að taka á bólgum, langvinnu stressi, endursetja taugakerfið, sleppa tökum á streitu og hvernig við innleiðum allt þetta í okkar daglega líf.

  4. Hreyfing: Uppgötvaðu mátt hugans yfir líkamanum og hvernig þú getur haft áhrif á kerfi hans.


Á þessu námskeiði lærir þú:

  • Skilning á sambandi líkama og hugar

  • Að nota öndun sem heilsubót

  • Kulda nálgun. Að læra að sleppa tökum á erfiðleikum

  • Kæling. Sem heilsutól

  • Meðvituð hreyfing. Skilning á eigin líkama

  • Vísindin á bak við aðferðina


Fyrir hverja: Námskeið þetta er ætlað fyrir hverja sem vilja kanna eigin kraft og getu.

  • Fyrir Úthaldið

  • Fyrir Topp Heilsu

  • Fyrir Langvinna Verki

  • Fyrir Streitulosun

  • Fyrir Andlega Heilsu

  • Fyrir Þyngdarstjórnun

  • Fyrir Betri Svefn

  • Fyrir Aukna Einbeitingu


Námskeiðið hentar byrjendum vel en ekki síður þeim sem hafa unnið eitthvað með kulda áður, því hér lærir þú hvernig þú getur tekið iðkun þína upp á hærra plan og bætt heilsu þína til hins betra


Hvenær: 

Helgarnámskeið 16.-17. nóvember. 

Laugardagur kl 13:00-18:00 og Sunnudagur kl. 9:00-14:00 

* Áður en námskeið hefst: 1.5kls. kynningarvideo á netinu 


>Hvar:  Íþróttahúsið í Mánagarði í Nesjum (7 km vestan við Höfn) Íþróttahúsið Mánagarður og Mánavöllur


Nánari upplýsingar: hi@andriiceland.com 

*Athugið: Við bjóðum upp afslátt fyrir nema og öryrkja. Auk þess má dreifa greiðslum ef þörf er á. Hugsanlega er hægt að fá endurgreiðslu frá stéttafélaginu þínu. Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar. 

*Mikilvægt: Þetta námskeið hentar ekki barnshafandi konum eða fólki með alvarlega hjarta- og æðasjúkdóma. Vinsamlegast ráðfærðu þig við lækninn þinn varðandi heilsufar þitt áður en þú tekur þátt í námskeiðinu.


"Að fara á námskeið hjá Andra var ein besta ákvörðun sem ég hef tekið.

Andri er mjög áhugasamur, fróður, þolinmóður og góður kennari, hann brennur fyrir því sem hann er að kenna.

Ég var búin að eiga í mjög slæmu brjósklosi í dágóðan tíma og ákvað því að skrá mig á námskeið hjá Andra.

Þegar ég var búin að ná tökum á Wim Hof önduninni og að fara ofan í kalda vatnið stóðu áhrifin ekki á sér, verkir og bólgur sem ég var búin að vera að eiga við í langan tíma hurfu eins og dögg fyrir sólu, ég er eins og ný manneskja.

Ég get af einlægni mælt með Andra og því sem hann kennir.

Takk fyrir mig - Sigríður"

Share this event

  • Grey Facebook Icon
  • Grey YouTube Icon

Never miss a COOL update

ANDRI ICELAND ©

Rauðagerði 25 

108 Reykjavík
Iceland

Kt. 690818-0430
Terms & Conditions

2023-008.png
Day tours Reykjavik
bottom of page