top of page
Anda Rétt - Nóvember
Anda Rétt - Nóvember

Tue, Nov 15

|

ANDRI ICELAND studio

Anda Rétt - Nóvember

Ekki til sölu | Not for sale
Námskeið | Workshops

Nov 15, 2022, 11:30 AM – Nov 24, 2022, 8:00 PM

ANDRI ICELAND studio, Fiskislóð 53, 101 Reykjavík, Iceland

Námskeið | Workshop

Anda rétt | Öndunarnámskeið 

Af hverju öndunartækni? Nú þegar langvarandi streita, kvíði, svefntruflanir, sjálfsofnæmissjúkdómar, kulnun og aðrir kvíðatengdir kvillar verða æ algengari út um allan heim, er kominn tími til þess að leita aftur í grunninn og gera grundvallarbreytingar fyrir fullt og allt. ​ Góðu fréttirnar eru þær að öndun er vinsælt umræðuefni. Fólk er að verða meðvitaðra um kraft öndunartækni til að ná sem bestum árangri og öðlast betri heilsu. Að grípa til fyrirbyggjandi ráðstafana til þess að bæta eigin heilsu, byggja upp seiglu og kanna möguleika sína til fulls.  ​ Öndunartækni hefur verið þekkt í aldaraðir. Í dag eru ótal aðferðir og tækni í boði. Frá sérhæfðum nálgunum til vísindalega sannaðra aðferða. Frá öndunaræfingum sem þjóna ákveðnum tilgangi til hagnýtrar öndunar í okkar daglega lífi. En þó hafa þær í raun allar sömu meginreglur. Markmiðið er að færa okkur aftur í átt að jafnvægi. Að kjarnanum okkar. Einn andardrátt í einu. Hér og nú.

Þér verður vísað í áttina að kjarna öndunartækni. Að finna jafnvægi, líkamlega, andlega og tilfinningalega. Með því að nota samsetningu af því sem við vitum að virkar til þess að ná því besta úr hverjum andardrætti. Að gefa þér verkfærin, skilninginn, til að þú náir tökum á eigin iðkun.

Áskorun okkar til þín er að að þú uppgötvir að það að iðka öndunartækni, þjálfa hana og verða meðvitaður/uð um eigin andardrátt, er í grunninn mikilvægari þáttur í að hlúa að sjálfum sér en líkamsrækt eða matarræði.

Nokkrir þekktir kostir þess að stunda öndunartækni:

  • Andlegt og líkamlegt jafnvægi
  • Losar um streitu
  • Hámarkar vellíðan
  • Bætir ónæmiskerfið
  • Eykur orku
  • Bætir líkamlegt þol
  • Tilfinningalegt jafnvægi
  • Bætir svefn
  • Dýpri hugleiðsla
  • Vinnur úr áföllum
  • Fitubrennsla
  • Skýrir hugsu

Það skiptir máli að anda rétt. Tölum um nokkrar gagnreyndar aðferðir sem ég kenni sem heilsu- & lífsleikniþjálfari:

  • Wim Hof Method - viðurkenndur leiðbeinandi - Level 2
  • Buteyko Clinic International - viðurkenndur leiðbeinandi
  • Oxygen Advantage - viðurkenndur leiðbeinandi
  • XPT Performance Breathing - viðurkenndur þjálfari ​

Ég er oft spurður um muninn á þessum gagnreyndu aðferðum og fólk veltir oft fyrir sér hver þeirra er best. En í sannleika sagt eru þær einstakar og geta einnig unnið saman eftir einstaklingum og tilætluðum árangri fyrir andlega og líkamlega heilsu.

  • Öndunartækni Wim Hof Method er öflug öndunaræfing til að öðlast ýmsa heilsufarslega ávinninga: meiri orku, minnkað streitustig og aukið ónæmissvar til að takast á við sýkla. Sameinum þetta með kuldameðferð og hugarfari til að læra að halda sjálfum sér í jafnvægi í öllum aðstæðum. Að læra að vera í lagi sama hvað.
  • Buteyko-aðferðin leggur meiri áherslu á það hvernig við öndum og beinist að fólki með heilsufars- eða höfuðbeinavandamál sem tengjast öndun. Aðlöguð fyrir börn, unglinga og fullorðna á öllum aldri með sérstökum öndunaræfingum og aðferðum sem beitt er við sérstökum heilsufarsvandamálum.
  • Oxygen Advantage þjálfun hagræðir öndunarmynstri hjá heilbrigðu fólki, með það að markmiði að bæta endurheimt, orkustig, fókus, einbeitingu og árangur hreyfingarinnar.
  • Að lokum er það XPT, sem leggur áherslu á mikil afköst í íþróttum og hvernig á að nota öndunartækni til að bæta árangur.

Það hvernig við öndum hefur sterk áhrif á efnafræðilega og lífeðlisfræðilega starfsemi líkama okkar. Magn súrefnis sem við öndum að okkur hefur áhrif á magn orkunnar sem er losuð inn í frumurnar í líkamanum. Öndun er auðveldasti og mikilvægasti hlutinn af sjálfvirka taugakerfinu sem hægt er að stjórna og stýra.

Hinar ýmsu aðferðir sem við kennum eru taldar tengjast því að draga úr einkennum sjúkdóma eins og liðagigt, MS, Parkinsonsveiki, astma, sarklíki, æðabólgu og fjölmargra sjálfsofnæmissjúkdóma.

Á þessu námskeiði lærir þú:

  • Farið verður dýpra í öndunartækni og hagnýta öndun.
  • Að skilja þín öndunarmynstur og stilla þau af eftir þörfum.
  • Hvernig þú nærð stjórn á streituviðbrögðum þínum og bregðast við streituvöldum á sem árangursríkastan hátt með því að nota öndunina.
  • Að skilja lífeðlisfræði öndunarinnar, kraft hugans og afleiðingar þess að beina fókusinum að heilbrigðari huga og líkama. Burt frá langvarandi streitu.
  • Að fara dýpra inn í skilninginn á mikilvægi öndunartækni. Að læra vísindin og verklega hlið réttrar öndunar og öndunaræfingar til að að bæta heilsuna.

Hvenær: 15.-24. nóvember. 3 hópur 

  • Hópur 1: kl. 11:30-12:30 Þri & Fim - Á staðnum  
  • Hópur 2: kl. 19:00-20:00 Þri & Fim - Á staðnum  
  • Hópur 3: kl. 19:00-20:00 Þri & Fim - Á netinu

Hvar: Fiskislóð 53, 101 Rkv eða á netinu (Zoom)

 *Athugið: Hugsanlega er hægt að fá endurgreiðslu frá stéttafélaginu þínu. Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar.

Share this event

bottom of page