fös., 10. feb.
|Hella
Wim Hof Method RETREAT February 2023
Cool men and women - Wim Hof Method Retreat
10. feb. 2023, 10:00 – 12. feb. 2023, 17:00
Hella, Hella, Iceland
Námskeið | Workshop
KALDIR KARLAR OG KONUR WIM HOF METHOD Retreat
//we accommodate for English-speaking people (for English description click the link at the bottom. Please note that this ticket does not include transportation to Hella)
Kuldi | Öndunaræfingar | Kraftur hugans | Hreyfing og margt fleira
Þessi helgi er um það að koma saman, ögra sér, deila, tengjast og styðja hvort annað. Uppgötva í leiðinni kraftinn innra með þér að vera “Okay no matter what”.
Tengdu þig inn á skemmtilegri og orkumikilli helgi
Þú mátt eiga von á:
• Áskorunum sem reyna á Kraft hugans
• Að læra að sleppa tökunum í erfiðum aðstæðum
• Að aftengja þig daglegri rútínu
• Að skilja og ná valdi á tengingu hugar og líkama
• Öndunaræfingum (Wim Hof, Oxygen Advantage og fleira)
• Kælingu (Wim Hof tækni og aðferðir Andra)
• Að nota kulda sem andlegt og líkamlegt heilsuverkfæri
• Hreyfiflæði
• Að losa um spennu/streitu
• Að skilja tilfinningalega endurgjöf
• Að byggja upp seiglu
• Kraftinum sem býr í samstilltum hóp
• Náttúru, náttúru og meiri náttúru!
Fyrir hverja: Hentar öllum yfir 18 ára aldri, sem finnur fyrir kallinu að koma með okkur í þetta ævintýri. Þú munt öðlast þekkingu á því hvernig á að tækla eftirfarandi:
- Vinna með daglegri streitu
- Setja vellíðan þína í fyrsta sæti
- Aukið þol
- Ákjósanlega heilsu
- Takast á við langvarandi sársauka
- Andlegur friður
- Betri svefn
- Þyngdartap
>Andri er stofnandi ANDRI ICELAND, umbreytandi vellíðunar- og heilsuþjálfunarstöð sem hefur að leiðarljósi aðferðir sem höfðu svo mikil áhrif á líf Andra að hann skilgreinir sjálfan sig sem “endurfæddan”. Vendipunkturinn þar sem áratugir af langvarandi, sárum verkjum í mjóbaki og mígreni hurfu loksins. Þessi umbreyting er það sem leiddi til þess að hann fór að miðla ávæningi kælimeðferðar, öndunaræfinga, hugarorku og hreyfingar, meðal annarra sannreyndra Mind-Body aðferða, til þúsunda manna. Með það að markmiði að leiðbeina öðrum í átt að sömu valdeflandi upplifun. Innblásinn af áhrifum beinnar kennslu frá heimsþekktum höfundum, þjálfurum og kennurum á sviði Mind-Body tækninnar hefur Andri orðið að fyrsta vali þeirra sem sækjast eftir umbreytandi þjálfunarupplifun sem á sér enga líka. Það er einfaldlega eitthvað algjörlega einstakt sem fólk upplifir við það að fara ofan í ískalt vatn, ögrar gömlum skoðanamynstrum, dýpkar skilning okkar á öndun, undir handleiðslu Andra. Þetta er einföld leið til þess að enduruppgötva getu þína til þess að ná aftur stjórn á sjálfvirkum streituviðbrögðum og læra að vera í lagi, sama hvað. Þetta er eins og að læra að vera til í auga stormsins.
Hvenær: 10-12 Febrúar 2023. Hittumst föstudaginn kl. 10:00 á staðnum. Helginni lýkur sunnudaginn kl. 17:00
Hvar hittumst við: Hellu (nákvæm staðsetning verður send út með staðfestingu á þátttöku)
Gisting: Við gistum í nágrenni kraftmikla eldfjallsins Heklu á Hellu. Fullkomin staðsetning sem er umkringd náttúru og nálægt mörgum frábærum stöðum fyrir dagskránna okkar. Þú færð þitt eigið svefnherbergi með sérbaðherbergi.
Hvað er innifalið:
- Allir dagskrárliðir
- Allar máltíðir (Plöntubasaðar máltíðir eldaðar á staðnum af okkar eigin kokki og næringafræðingi)
- Gisting í sérherbergi með eigin baðherbergi
- Gönguferðir í náttúrunni og hópefli
Nánari upplýsingar verða sendar við skráningu.
**Hugsanlega er hægt að fá endurgreiðslu frá stéttafélaginu þínu.
Lestu meira hér: www.andriiceland.com/kaldirkarlarogkonur