

fös., 28. okt.
|Hella
KALDIR KARLAR OG KONUR Wim Hof Method RETREAT Október
Cool men and women - Wim Hof Method Retreat October
28. okt. 2022, 10:00 – 30. okt. 2022, 17:00
Hella, Hella, Iceland
Námskeið | Workshop
KALDIR KARLAR OG KONUR WIM HOF METHOD Retreat
//we accommodate for English-speaking people (for English description click the link at the bottom)
Kuldi | Öndunaræfingar | Kraftur hugans | Hreyfing og margt fleira
Þessi helgi er um það að koma saman, ögra sér, deila, tengjast og styðja hvort annað. Uppgötva í leiðinni kraftinn innra með þér að vera “Okay no matter what”.
Tengdu þig inn á skemmtilegri og orkumikilli helgi
Þú mátt eiga von á:
Áskorunum sem reyna á Kraft hugans
Að læra að sleppa tökunum í erfiðum aðstæðum
Að aftengja þig daglegri rútínu
Að skilja og ná valdi á tengingu hugar og líkama
Öndunaræfingum (Wim Hof, Oxygen Advantage og fleira)
Kælingu (Wim Hof tækni og aðferðir Andra)
Að nota kulda sem andlegt og líkamlegt heilsuverkfæri
Hreyfiflæði
Að losa um spennu/streitu
Að skilja tilfinningalega endurgjöf
Að byggja upp seiglu
Kraftinum sem býr í samstilltum hóp
Náttúru, náttúru og meiri náttúru!
Fyrir hverja: Hentar öllum yfir 18 ára aldri, sem finnur fyrir kallinu að koma með okkur í þetta ævintýri. Þú munt öðlast þekkingu á því hvernig á að tækla eftirfarandi:
Vinna með daglegri streitu
Setja vellíðan þína í fyrsta sæti
Aukið þol
Ákjósanlega heilsu
Takast á við langvarandi sársauka
Andlegur friður
Betri svefn
Þyngdartap
>Andri er stofnandi ANDRI ICELAND, umbreytandi vellíðunar- og heilsuþjálfunarstöð sem hefur að leiðarljósi aðferðir sem höfðu svo mikil áhrif á líf Andra að hann skilgreinir sjálfan sig sem “endurfæddan”. Vendipunkturinn þar sem áratugir af langvarandi, sárum verkjum í mjóbaki og mígreni hurfu loksins. Þessi umbreyting er það sem leiddi til þess að hann fór að miðla ávæningi kælimeðferðar, öndunaræfinga, hugarorku og hreyfingar, meðal annarra sannreyndra Mind-Body aðferða, til þúsunda manna. Með það að markmiði að leiðbeina öðrum í átt að sömu valdeflandi upplifun. Innblásinn af áhrifum beinnar kennslu frá heimsþekktum höfundum, þjálfurum og kennurum á sviði Mind-Body tækninnar hefur Andri orðið að fyrsta vali þeirra sem sækjast eftir umbreytandi þjálfunarupplifun sem á sér enga líka. Það er einfaldlega eitthvað algjörlega einstakt sem fólk upplifir við það að fara ofan í ískalt vatn, ögrar gömlum skoðanamynstrum, dýpkar skilning okkar á öndun, undir handleiðslu Andra. Þetta er einföld leið til þess að enduruppgötva getu þína til þess að ná aftur stjórn á sjálfvirkum streituviðbrögðum og læra að vera í lagi, sama hvað. Þetta er eins og að læra að vera til í auga stormsins.
Hvenær: 28-30 Október Hittumst föstudaginn kl. 10:00 á staðnum. Helginni lýkur sunnudaginn kl. 17:00
Hvar hittumst við: Hellu (nákvæm staðsetning verður send út með staðfestingu á þátttöku)
Gisting: Við gistum í nágrenni kraftmikla eldfjallsins Heklu á Hellu. Fullkomin staðsetning sem er umkringd náttúru og nálægt mörgum frábærum stöðum fyrir dagskránna okkar. Þú færð þitt eigið svefnherbergi með sérbaðherbergi.
Hvað er innifalið:
Allir dagskrárliðir
Allar máltíðir (enginn rugl matur - Plöntubasaðar máltíðir eldaðar á staðnum af okkar eigin kokki og næringafræðingi)
Gisting í sérherbergi með eigin baðherbergi
Gönguferðir í náttúrunni og hópefli
Nánari upplýsingar verða sendar við skráningu.
**Hugsanlega er hægt að fá endurgreiðslu frá stéttafélaginu þínu.
Lestu meira hér: www.andriiceland.com/kaldirkarlarogkonur